fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hv. þingmaður sé jákvæður fyrir því að skoða þetta ferli í stærra samhengi upp á framtíðina að gera, eins og er svo sem talað um í þessari ágætu skýrslu. Mig langaði aðeins að benda á flugstefnuna sem fylgir með samgönguáætlun sem einhvers konar viðauki. Þar er talað um helstu áherslur, sem ég ræddi áðan, til að ná fram markmiðum um öruggar flugsamgöngur. Þar er einmitt tilgreint í c-lið 1. liðar að skoðað verði hvernig tryggja megi leiðréttingartækni vegna gervihnattaleiðsögu um allt land. Þetta er því einmitt ávarpað í þessu plaggi. Í d-lið stendur að leggja eigi mat á lendingarstaði með hliðsjón af öryggishlutverki þeirra.
Þetta snertir kannski umræðuna sem við hv. þingmaður tókum hér áðan varðandi Fagurhólsmýri og velli sem eru á stórum landfræðilegum svæðum, kannski stakir vellir. Það þarf að tryggja aðstöðuna sem þar er ef það verða slys eða náttúruhamfarir eða hvað það er til að rýma svæðið eins og við sáum í stóra rútuslysinu í fyrra þegar björgunin var með þyrlum og flugvélum. Við erum með landsvæði víða, stór landsvæði, þar sem er treyst töluvert á það að það sé slíkt aðgengi, inn á hálendinu, með suðurströndinni og fyrir austan. Þarna eru stór svæði sem treysta á þetta. Þess vegna þurfum við að huga að því að fjármagn sé tryggt í þessa hluti. Svo má heldur ekki gleyma að tryggja minni lendingarstaði, fyrir minni vélar sem geta þó sinnt stóru hlutverki. Ég var t.d. ósáttur við það þegar aflögð var braut í Borgarfirði eystri fyrir tveim, þrem árum og fleiri dæmi sem við höfum séð. Kerfið hefur verið að veikjast og veikjast mjög hratt frá 2011, ég benti á að þar er rótin að þessu, þegar kerfið verður svo rosalega vanfjármagnað eftir 2011 vegna þeirra aðgerða sem komu fram þá.