fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Það er greinilegt að hv. þingmaður vill ekki ræða þetta á rólegum nótum, það er nokkuð ljóst. Hann talar um að hver verði sannleikanum sárreiðastur. Er það kannski bara niðurstaðan að hv. þingmaður sé svona ósáttur við að hér hafi verið uppi hugmyndir um að fara í veggjöld þar sem einstaklingar, íbúar og þegnar þessa lands, þurfi að reiða út aukin gjöld ofan á skattahækkanirnar og bæta við gjöldum til að fara í samgönguframkvæmdir? Ríkissjóður á þessar eignir. Þarna liggja fjármunir sem nýtast í raun og veru engum. Er ekki skynsamlegt að nýta þá í mikilvægar samgönguframkvæmdir? Svo talar hv. þingmaður um popúlisma. Hvernig má það vera að það að við ætlum að nýta eignir okkar í mikilvægar framkvæmdir sé popúlismi, hv. þingmaður? Ég skil ekki svona málflutning. Það er ekkert að því að ræða þetta í þessu samhengi. Kjarni málsins er sá að það vantar fjármuni í þennan mikilvæga málaflokk og það á að leita allra leiða til þess. Ríkissjóður á þennan banka, hann á Landsbankann og hann hefur fullkomlega heimild til að selja hann og nýta fjármunina í mikilvægar samgönguframkvæmdir. Þar með lýk ég máli mínu, hv. þingmaður, í þessum furðulega málflutningi mínum.