fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Mig langaði að nota þessar fimm mínútur núna og beina máli mínu til umhverfis- og samgöngunefndar varðandi umræðu um Hvassahraunsskýrsluna. Við ræddum hana aðeins áðan og ég vildi bæta við þá umræðu til upplýsingar því sem ég hafði ekki tíma til að gera áðan. Ég held að nefndin, eða hv. þingmenn sem þar sitja, og mögulega hæstv. ráðherra og ráðuneytið, þurfi að fara betur í gögn sem snúa að kostnaði við gerð flughlaða á Akureyri, á vél. Í Hvassahraunsskýrslunni, viðauka 8a, er talað um að það muni kosta um 1.600 milljónir að fullgera það flughlað sem talað er um að fari í framkvæmd, nýtt flughlað í tveimur áföngum. Í viðaukanum er talað um að þetta muni bara bæta við stæðum fyrir fjórar til fimm þotur, þá miðað við Boing 757. Nú hef ég gögn og hef aðeins kynnt mér málið því að mér fannst eitthvað skrýtið við þetta. Þegar ég var að lesa Hvassahraunsskýrsluna og fara í gegnum þessar 200 síður kom í ljós að þegar talað er um að framkvæmdirnar muni kosta 1.600 miljónir er verið að vitna í skýrslu EFLU verkfræðistofu sem hún skrifaði fyrir Eyþing vegna uppbyggingaráætlunar fyrir Akureyrarflugvöll. Þar kemur þessi tala fram, 1.600 milljónir, en þær 1.600 milljónir eru raunverulega fyrir flughlaðið og líka fyrir ákveðnar aðrar framkvæmdir á vellinum, til að tengja saman gamla og nýja stæðið og reyndar annars staðar á vellinum. Raunverulegt fjármagn sem er verið að tala um í nýja flughlaðið eru 1.275 milljónir, í þá tvo áfanga, og það eru ekki fjórar eða fimm vélar sem komast fyrir á þessu nýja flughlaði heldur ellefu. Veruleikinn er sá að á hvert flugvallarstæði, sem eru þá 300–350 milljónir, eru 115 milljónir í kostnaðaráætlun.
Ég hef í dag farið í gegnum þær skýrslur sem hafa verið gerðar um þessi mál, Hvassahraunsskýrsluna og skýrslu EFLU, og þetta er punktur sem ég held að mjög mikilvægt sé að taka til hliðsjónar. Það kemur í ljós að þetta er mun minni kostnaður en kemur fram í Hvassahraunsskýrslunni. Þegar verið er að meta valkosti — og ekki ætla ég að tala gegn Egilsstaðaflugvelli — skal rétt vera rétt þannig að menn séu ekki í stað þess að bera saman epli og epli að bera saman epli og appelsínur í skýrslunni og fara með rangar tölur. Ég lít svo á að þetta hljóti að vera verkefni umhverfis- og samgöngunefndar (Gripið fram í.) og held að nauðsynlegt sé að nefndin og ráðuneytið fari svolítið í gegnum þessa tölfræði. Mögulega hafa menn verið að taka ákvarðanir í stóra samhenginu byggðar á röngum gögnum. Það lítur þannig út.
Ég er til í að ræða þetta við nefndarmenn og ráðuneytið og ráðherrann til að afla þessara gagna og beina athyglinni að þeim punktum sem ég tel að séu ekki settir í rétt samhengi. Ef við lesum bls. 186 í Hvassahraunsskýrslunni, viðauka 8a, og síðan skýrslu EFLU sem var gerð vegna uppbyggingaráætlunar fyrir Akureyrarflugvöll þá stemma ákveðnar tölur en það stemmir í raun ekki hvað verið er að gera við þessar 1.600 milljónir né heldur fjöldi flugvallarstæða, sem er mikið mál að rétt sé með farið þegar menn eru að meta tvo valkosti, hvað sé hagstæðast að gera. Ég vildi koma því á framfæri vegna þess að satt að segja brá mér svolítið í gær þegar ég uppgötvaði að ekki var verið að bera rétta hluti saman.