fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að eiga orðastað við hv. þingmann sem er flugmaður og veit afar vel hvað hann er að tala um. Ég ætla ekki að fara út í það, hefði getað gert það í löngu máli, en við erum auðvitað sammála um að endurnýja verði bæði flugvallarkerfi og flugleiðsögukerfið og það eru jú tekin fyrstu skref í þessari áætlun. Framhaldið ræðst svo af ýmsu. Þá vil ég minna á að samgönguáætlun er ekki klöppuð í stein. Hún verður auðvitað endurskoðuð og þá koma fram breytingar á lausnum. En mig langar aðeins að koma inn á þetta varaflugvallagjald sem við erum búin að ræða, meira að segja við forsvarsmenn Isavia og fleiri. Þegar um er að ræða verðmiða á flugmiðum upp á 20.000–50.000 kr. og talað um upphæð sem er kannski minni en 1 dollari eða 1,5 dollarar sem bætist ofan á, þ.e. 100–200 kr., og maður horfir til hagsmuna flugfélaganna af því að hafa varaflugvellina betur í garð gerða, hvort sem eru íslensku félögin sem hafa áhuga á varaflugvöllum hér innan lands eða erlendu flugfélögin sem eru að notast við Glasgow og þurfa að leggja á sig aukabirgðir af eldsneyti þess vegna — að telja það raunverulega hamlandi að þurfa að innheimta þetta og skila til ríkisins. Þá spyr ég bara hv. þingmann: Hvaða rök eru fyrir því að upphæð sem er núll komma eitthvað prósent af flugmiðaverði geti raunverulega haft áhrif á hag flugfélaganna og á ferðamannastraum til Íslands? Ég get ekki séð þau rök nema bara þessi hefðbundnu: Jú, við værum löngu búin að innheimta þetta ef við gætum. Þetta er aukagjald og ég er sannfærður um að farþegarnir munu fagna þessu.