fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við erum kannski ekki svo mikið ósammála. Ég bara ætla ekki að fallast á það yfir höfuð að það sé aðför að hag flugfélaga að láta þau innheimta 100 eða 200 kr. og þar með verða af 2–3 milljörðum í tekjur, einfaldlega vegna þess að það er verið að nota þetta fé fyrir þau og fyrir neytendur. Ég veit alveg hvert svarið myndi vera ef neytandi væri spurður: Ertu tilbúinn að borga 100–200 kr., sem eru ekki einu sinni fyrir kókflöskunni sem þú kaupir, upp á það að þú hafir örugga varaflugvelli? Að blanda svo inn í þetta lággjaldaflugfélögum er svo annar handleggur. Auðvitað þekkjum við starfsaðferðir þeirra og það er val neytenda að velja þau eða einhver önnur. En það er örugglega ekki gert með neinni blessun stjórnvalda að þessi flugfélög, þau sem illa að fara með starfsmenn, hagi sér þannig. Hins vegar höfum við þá opnu pólitík hér að þau flugfélög sem hingað vilja fljúga komist ef öryggi þeirra og annað er í lagi. Þegar ég segi annað á ég ekki við framkomu við starfsfólk heldur vélar og annað slíkt. Þannig að mér fannst það ekki vera þess virði að blanda þeim inn í þetta heldur segi einfaldlega: Ef íslenskum stjórnvöldum þykir við hæfi að afla fjár til að bæta flugvelli og búa þá til þau ruðningsáhrif sem felast í því að það losnar um aðra fjármuni í aðra flugvelli, og kjósa að gera það, þá hef ég enga meðaumkun með þeim flugrekendum sem hingað senda farþega heldur einfaldlega tel ég skyldu þeirra að fagna þessu skrefi.