varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá 3. þm. Norðaust., Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, og 6. þm. Reykv. s., Kolbeini Óttarssyni Proppé, um að þeir verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Pírata um að 4. þm. Reykv. s., Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum.
Í dag taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 1. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu, Þorgrímur Sigmundsson, 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Orri Páll Jóhannsson, og 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Olga Margrét Cilia.
Þau hafa öll áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa.