150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

verð á makríl.

[15:09]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra talar um að hér sé tortryggni út í atvinnugreinina sem sé engum til gagns. Þá er nú svo sem ekki úr vegi að spyrja hvort honum finnist ekki eðlilegt, í ljósi þeirra upplýsinga sem hafa komið fram, að sú tortryggni sé til staðar og hvort hann hafi ekki miklu meiri áhyggjur af því að atvinnuvegurinn sé ekki almenningi til gagns, þ.e. ef það er kerfisbundið verið að leika sér, með löglegum eða ólöglegum hætti, að þessu kerfi okkar, og að það rýri tekjur sjómanna, sveitarfélaga og ríkis og við séum í basli með að standa undir bæði lögbundnu og ólögbundnu hlutverki okkar á meðan sú atvinnugrein sem ráðherra hefur áhyggjur af getur mokað til sín milljörðum og milljörðum í arð.