150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

verð á makríl.

[15:10]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil meina að sú atvinnugrein sem hér er til umræðu sé almenningi til gagns, hafi verið það í áranna rás og sé enn, sem betur fer. Þegar rætt er um arðgreiðslur út úr einni tiltekinni atvinnugrein geta þær verið mismiklar, allt eftir því hvernig árar í starfseminni. Ég ítreka bara í þessum sal að gerður hefur verið samanburður á arðgreiðslum í sjávarútvegi á við aðrar atvinnugreinar og mér skilst á þeim sem þann samanburð hafa gert að sjávarútvegurinn komi ekki sem sigurvegari út úr þeim samanburði. Það er hins vegar engin umræða um arðgreiðslur út úr öðrum atvinnurekstri en sjávarútvegi, a.m.k. ekki sem ber mikið á. Ég held að öllum væri hollt að taka umræðu í einhverju heildarsamhengi um afkomu í sjávarútvegi og bera hana saman við afkomu í öðrum atvinnurekstri.

Ég ítreka að sú tortryggni sem þetta einstaka mál hefur skapað er slæm, (Forseti hringir.) hvernig svo sem á það er litið.