150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

fjárframlög til héraðssaksóknara og ríkislögmanns.

[15:35]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Við fáum kannski að ræða betur síðar við hæstv. dómsmálaráðherra um veru okkur á þessum lista. Núna er mér eiginlega meira umhugað um hitt. Ég skil nefnilega ekki muninn á þessu tvennu. Fram kom rökstudd beiðni héraðssaksóknara um auknar fjárveitingar fyrir allnokkru en stjórnarmeirihlutinn fann því allt til foráttu að afgreiða beiðnina með hraði. Ég sé ekki að byrjað sé að afgreiða hana í fjáraukalögunum, þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða, að þá yrði tryggð beiting varasjóða eða fjáraukalaga þessa árs svo að héraðssaksóknari fengi það fjármagn sem til þyrfti. Það mátti ekki með nokkru móti fara í gegnum atkvæðagreiðslu í þinginu að veita embættinu þá fjárheimild sem það kallaði eftir. Ég get enn ekki skilið það, það hefði verið hreinlegasta aðferðafræðin út frá lögum um opinber fjármál.

Þess vegna segi ég enn og aftur: Hverju sætir það misræmi í málsmeðferð að það sé hægt að afgreiða á korteri beiðni ríkislögmanns en að ég fái ekki betur séð en að héraðssaksóknari liggi enn óbættur (Forseti hringir.) hjá garði með þá beiðni sem embættið hefur lagt fram?