150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

fjárframlög til héraðssaksóknara og ríkislögmanns.

[15:36]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það hefur verið mjög skýrt að þessari fjárbeiðni yrði mætt ef þess væri þörf og það er unnið að því. Staðan á þeim fjárheimildum var bara óskýrari. Þetta var eins og beiðni sem kæmi venjulega fram við fjárlagagerð að vori. Hv. þingmaður ber þetta saman við kostnað vegna Landsréttarmálsins en sá kostnaður er búinn, ekki eitthvað sem koma skal. Það er það sem við höfum verið að nýta okkur núna og við vitum nákvæmlega hvaða upphæð þarf til að mæta þeirri kröfu.

Auðvitað má benda á að við höfum ákveðnar reglur um fullnægjandi áætlanir og fjárlagatillögur í samræmi við stefnumótun stjórnvalda á þessu málefnasviði og sem eiga að hafa fengið viðhlítandi rýni og yfirferð ráðuneyta, samanber 21. og 22. gr. þeirra laga. Þar með er ekki tilefni til að gera breytingar (Forseti hringir.) á fjárlagafrumvarpinu sjálfu heldur að fylgja því og fullnægja þeim skilyrðum sem við viljum setja þegar við könnum hvaða fjárheimildir þarf. Ég hef átt gott samtal við héraðssaksóknara þess efnis og hann er sammála því.