150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

stefna stjórnvalda í fíkniefnamálum.

[15:40]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Þetta er mikilvægt umræðuefni. Fyrir stuttu var rætt í ráðherranefnd um þessi mál og hvernig því miðaði að styrkja aðgerðir gegn fíkniefnasölu, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum, styrkja aðgerðir gegn innflutningi og framleiðslu fíkniefna og snúa af braut harðari refsingar fyrir neyslu fíkniefna. Þetta er í stjórnarsáttmálanum þannig að ég held að stefna ríkisstjórnarinnar sé ansi skýr.

Varðandi þá stórkostlegu aukningu sem þingmaðurinn nefnir hef ég látið kanna það sérstaklega og það er kannski engin sérstök aukning á heildarmagni fíkniefna á Íslandi heldur breyting á því hvaða fíkniefni koma til landsins. Það er meira magn af sumum efnum og minna af öðrum. Það er ekki stórkostlegur munur á milli síðustu ára í því en það er auðvitað mikilvægt að fylgjast með þessu. Að mínu mati er það þó svo að við náum mestum árangri annars vegar með forvörnum og hins vegar skilningi á því hvers konar vandamál er við að etja. Við verðum að skilja að þetta er heilbrigðisvandamál að miklu leyti svo að við náum einhverjum árangri í þessum málaflokki. Það er alveg augljóst og mér finnst ég ekki vera að segja neinar fréttir þegar ég segi að bannstefnan hafi ekki virkað. Hún hefur einfaldlega ekki virkað sem skyldi síðustu ár. Við eigum erfitt með að útiloka fíkniefni til að mynda frá fangelsum, þó að við séum með sérstaka aðgerðaáætlun þess efnis. En ég held að við munum ná meiri árangri ef við horfum á þetta út frá stefnu ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum, þ.e. að minnka refsingu neytenda og líta á þá sem sjúklinga og ná þar með meiri árangri í að stöðva útbreiðslu fíkniefna.