150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

stefna stjórnvalda í fíkniefnamálum.

[15:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég held að við hv. þingmaður séum bara nokkuð sammála. Ég má til með að nefna að við höfum verið að auka fjármuni til lögreglunnar varðandi skipulagða glæpastarfsemi, til að mynda er 80 millj. kr. framlag á fjárlögum 2019 til að styrkja aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi með áherslu á aðgerðir gegn fíkniefnasölu, innflutningi og framleiðslu. Einnig hefur félags- og jafnréttismálaráðherra skipað starfshóp um bættar félagslegar aðstæður einstaklinga sem lokið hafa afplánun refsinga í fangelsi. Þá mun ég kynna í vikunni aðgerðaáætlun varðandi málefni fanga þar sem við sjáum hve fíknin er mikil og endurkomutíðni í fangelsi stafar oft af þeirri fíkn sem þar er við að etja. Það er auðvitað hlutverk okkar að taka á þessum málum af alvöru, þora að horfa með öðruvísi augum á þau, hjálpa þeim sem þurfa á því að halda og auðvitað að taka á því sem þarf að taka á.