150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2019 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn.

428. mál
[15:53]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð nú bara að viðurkenna að mér er ekki alveg kunnugt um hvað hv. þingmaður á við með þessu. Þetta mál var alla vega afgreitt frá hv. utanríkismálanefnd án nokkurra athugasemda. Allir nefndarmenn tóku undir það og við sáum engan meinbug á því að afgreiða málið að þessu sinni. Ég verð að viðurkenna að hv. þingmaður verður þá að útskýra betur fyrir mér hvað það er sem hann er nákvæmlega að vísa til.