ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2019 um breytingu á XIX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég kynntist þessu máli aðeins öðruvísi, þ.e. í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þar sem var verið að fjalla um tvö frumvörp sem varða innleiðingu þessarar reglugerðar. Þar hef ég rekist á efnisleg atriði sem mér er mjög í nöp við, reyndar ekki mörgum öðrum utan Pírata, en þau varða blessað internetið eins og kannski gefur að skilja. Eftir að ég kynntist því máli tók ég eftir því að þetta mál hér væri hjá utanríkismálanefnd og áttaði mig á því að þar væri í raun verið afgreiða mál til þess að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara við þau mál sem eru til afgreiðslu í allsherjar- og menntamálanefnd.
Við þetta fór ég að velta fyrir mér, eins og hefur reyndar oft komið upp áður held ég í umræðum, hvort utanríkismálanefnd hafi getað farið efnislega djúpt í reglugerðina sjálfa sem málið fjallar um. Og ég spyr vegna þess að ég kem sjálfur til með að sitja hjá við afgreiðslu þessa máls, jafnvel greiða atkvæði gegn því, vegna þessara hefðbundnu EES-vandræða sem við lendum í, að við fáum að vita af vanköntunum of seint. Við virðumst ekki hafa neinn feril til að koma áleiðis ábendingum eða óskum um endurskoðun til sameiginlegu EES-nefndarinnar þegar málin eru komin hingað inn á borð, eins og þetta mál núna. Við erum að fjalla um það við síðari umræðu þannig að það er kannski fullseint að fara að hræra mikið í því eða að hv. nefndarmenn sem eru á nefndarálitinu, jafnvel þótt með fyrirvara sé, skipti um skoðun á því
Spurning mín er einfaldlega sú, virðulegi forseti, hvort nefndin hafi getað farið eitthvað efnislega út í efni reglugerðarinnar og þá velti ég fyrir mér af hvaða dýpt það hafi verið gert og hvort það hafi verið einungis í því augnamiði að fá séraðlaganir eða til þess að gera fyrirvara við einhver tiltekin útfærsluatriði sem snúa ekki beinlínis að sérstöðu Íslands heldur efni málsins sjálfs.