150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2019 um breytingu á XIX. viðauka við EES-samninginn.

429. mál
[16:01]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er til umfjöllunar þingsályktunartillaga um að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara við EES-mál sem ég tók eftir, eins og ég fór yfir í andsvari mínu við hv. 3. þm. Suðvest., í allsherjar- og menntamálanefnd. Reyndar var það annar aðili sem benti mér á það, svo ég segi alveg skýrt frá. Þar eru efnisákvæði sem ég geri miklar athugasemdir við. Nú eru þau frumvörp ekki til efnislegrar umræðu akkúrat hér og nú heldur þetta tiltekna mál sem þó skuldbindur okkur til að innleiða þau mál endanlega. Það er sama sagan núna og er svo oft áður með EES-málin að maður tekur ekki eftir því sem skiptir máli efnislega í þeim fyrr en það er orðið of seint. Við erum komin í síðari umræðu um þessa tillögu. Skilað hefur verið nefndaráliti en frumvörpin, sem þessi þingsályktunartillaga gerir okkur skyldug til að taka upp í lög, eru enn þá í allsherjar- og menntamálanefnd. Mér skilst, án þess að maður viti nú alltaf hlutina með mikilli vissu á Alþingi, að þau muni liggja þar fram yfir áramót vegna þess að Noregur og Liechtenstein hafi ekki innleitt þetta sín megin hvort sem er. Það er svo sem engin ástæða fyrir okkur til að vera fyrst til að innleiða þessa reglugerð.

Mér finnst rétt að minna aðeins á umræðu sem átti sér stað hér í sumar um hinn svokallaða þriðja orkupakka. Þar rökræddum við heilmikið um EES-mál og meðferð þeirra. Þar var um að ræða mál sem var búið að fá gríðarlega mikla efnisumræðu árum saman, enda er verið að innleiða þar hluti sem voru samþykktir í Evrópusambandinu 2009, fyrir tíu árum síðan. Það er vel hægt að skilja að sumum finnst aldrei nægur tími tekinn í neitt mál, ég kannast við það víða, þannig líður mér mjög oft hérna, jafnvel þegar það eru tækifæri til þess að kynna sér þau yfir lengri tíma. En eftir stendur að ferlið er þannig að við sitjum í raun og veru uppi með þann eina kost að samþykkja mál sem koma frá EES, ellegar hætta á það að gerast brotleg við EES-samninginn. Sumir vilja meina að það þýði að það gangi gegn stjórnarskrá eða skerði einhvern veginn fullveldisrétt okkar og þar fram eftir götunum, en að mínu mati er þetta flóknara en svo. Þetta verður alltaf spurning um það í raun og veru, ekki hvað við eigum að gera, við megum ganga úr EES-samstarfinu og við getum einfaldlega brotið samninginn og tekið afleiðingunum af því. Við viljum hins vegar ekki gera það að öllu jöfnu vegna þess að það er of mikið í húfi. EES-samningurinn er einfaldlega svo ofboðslega gagnlegur.

Nú lendi ég í sama vanda og kollegar mínir í Miðflokknum í sumar að ég er efnislega á móti atriði sem ég fæ þó ekki betur séð á þessari stundu en að við neyðumst til að taka upp. Það er að í útfærslu á þeim reglugerðum, sem hér er lagt til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af, verður í ansi mörgum tilfellum í ansi mörgum stofnunum heimild til að kalla eftir lögbanni á milliaðila á netinu.

Í reglugerðinni er í g-lið 4. mgr. 9. gr. að finna upptalningu í þremur liðum á hlutum sem þar til bærir aðilar verða að geta gripið til, t.d. að geta afskráð lén hjá aðila sem brýtur í bága við reglugerðina og ekki er hægt að ná í og ekkert hægt að gera í. Allt í lagi. Mér finnst það vera neyðarúrræði og það gleður mig að heyra að það er líka skilningur þeirra sem ég tala við í nefnd og fleiri að það sé neyðarúrræði. Mér er í nöp við það en ég skil það og mér finnst það ekki hættulegt, mér finnst það ekki ganga beinlínis í berhögg við það hvernig internetið virkar sem tæknilegt fyrirbæri. Sömuleiðis er heimild í ii-lið g-liðar 4. mgr. 9. gr. til að skikka hýsingaraðila til að taka niður efni sem brýtur gegn lögum um neytendavernd eða reglugerðinni. Aftur er þar sami fyrirvara um að aðstæður séu þannig að ekki sé hægt að ná í aðilann eða bregðast við með öðrum hætti. Þetta er neyðarúrræði sem er gott. En síðan er í reglugerðinni, á eftir þessum þremur liðum í g-lið 4. mgr. 9. gr., setning sem kveður á um þessir aðilar, lögbæru aðilar — ég ætla að fletta því upp snöggvast hvað þetta heitir, svo ég fari örugglega rétt með — lögbær yfirvöld sem myndu framfylgja slíku geti gefið það vald til þriðja aðila. Túlkunin er sú að þeir þriðju aðilar séu þessir milliliðir, þ.e. netfyrirtæki, netfyrirtækin sem veita tengingarnar. Milliliður: Ef við myndum taka líkingu við gatnakerfið og bíla, segjum bankaræningja sem nota bíla til að ræna peningum í bankanum og fara með þá heim til sín, þá er milliðurinn vegagerðin, jafnvel vegurinn sjálfur væri hægt að segja. Þegar málið er farið þangað er mér ekki lengur bara í nöp við það eða þessa aðferð alla vega, mér finnst hún ótæk. Ég er á móti henni, mér finnst hún vond vegna þess að ég fullyrði að hún er ósamhæfð við grundvallarhugsunina á bak við það hvernig internetið virkar.

Nú verð ég að hafa þann fyrirvara samt á máli mínu að hér er ekki um að ræða jafn víðtækar og hreint út sagt vanhugsaðar aðferðir og hefur verið stungið upp á og innleiddar í sambandi við höfundarétt í gegnum tíðina. Þær útfærslur hafa einkennst af miklu meiri taugaveiklun og miklu fyrr verið gripið til lögbanns og á miklu veikari grunni og jafnvel til að verja veikari hagsmuni og þó með meiri afleiðingum en í þessu máli. Maður sér alveg í frumvarpinu sem varðar þetta mál að það er litið á þetta sem algerlega til þrautavara og reyndar kom fram í hv. allsherjar- og menntamálanefnd að í það minnsta Neytendastofa kannaðist ekki við að rekin hefðu verið mál sem myndu gera það að verkum að hún myndi beita þessu úrræði, ekki miðað við fortíðina alla vega. Það má gera ráð fyrir því að þetta gerist mjög sjaldan og í mjög afmörkuðum tilfellum. Aftur á móti í þeirri útfærslu eða leið sem við höfum ákveðið að fara hér, sem ég óttast að við séum skyldug til að fara, er þessa lögbannsheimild að finna í tilheyrandi frumvörpum hjá ansi mörgum stofnunum og það þykir mér miður. Í einni umsögn var stungið upp á því að í stað þess myndi bara einhver ein stofnun sjá um að kalla eftir þessum lögbönnum en það þykir víst flókið af ástæðum sem ég ætla ekki að útskýra hér.

Til að útlista hvar þessi lögbönn á fjarskiptafyrirtækin, þ.e. milliliði, er að finna er það í frumvarpi á þskj. 374 í máli nr. 330 á þessu þingi. Lögbannsheimildina er að finna í því sem ég kalla b-liðinn. Það er b-liður sem kemur fyrir svolítið oft. Það er b-liður 8. gr., b-liður d-liðar 10. gr., b-liður d-liðar 13. gr., b-liður c-liðar 15. gr., b-liður d-liðar 17. gr., b-liður d-liðar 18. gr., b-liður 23. gr. og síðast en ekki síst b-liður b-liðar 25. gr.

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta aðeins of mikið, aðeins of oft, aðeins of mikið af stofnunum sem verið er að veita þessa heimild að mínu mati. Það er Neytendastofa sem dæmi, líka Lyfjastofnun sem fær slíka heimild, Fjármálaeftirlitið, fjölmiðlanefnd fær þessa heimild, ég skil reyndar ekki alveg af hverju fjölmiðlanefnd ætti að hafa þá heimild. Ég átta mig ekki á því undir hvaða kringumstæðum fjölmiðlanefnd myndi fara að kalla eftir lögbanni til að vernda heildarhagsmuni neytenda á internetinu, auglýsi eftir því. Það segir sig sjálft, finnst mér, í það minnsta að ef við þurfum ekki að veita svona lögbannsheimildir eigum við ekki að veita þær. Ef við þurfum ekki að veita svona lögbannsheimildir þykir mér það fara fram úr því sem er kallað meðalhóf. Það eru veittar einhverjar heimildir sem enginn getur útskýrt hvers vegna ætti að nýta og enginn veit um dæmi þess að hafi þurft að nýta en eru að sama skapi afskaplega afdrifaríkar og er hægt að misnota ef þær eru í röngum höndum og kerfið virkar ekki alveg nógu vel. Eins og við höfum farið yfir af og til, ég og hv. 5. þm. Reykv. s., þá virkar kerfið stundum ekki alveg nógu vel.

Í greinargerð með frumvarpinu sem innleiðir eða útfærir reglugerðirnar sem hér er lagt til að stjórnskipunarlegum fyrirvara verði aflétt af er beinlínis farið út í þá tæknilegu kosti sem væri hægt að nýta. Það er í raun og veru það sem ætti að hræða fólk. Ég verð að lesa aðeins úr þeirri greinargerð, með leyfi forseta:

„Úrræðið er sérstaklega raunhæft þegar seljandi fer huldu höfði eða virðir að vettugi ákvarðanir Neytendastofu, úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála eða dóma.“

Þetta þótti mér áhugavert orðalag, „sérstaklega raunhæft“. Það vill svo til að hér er um að ræða það sem í greinargerð er kallað lénsheitakerfissía eða á ensku og á máli sem kollegar mínir úr tölvunördabransanum kannast við, „DNS blocking“, og IP-tölu sía, á ensku „IP address blocking“. Þetta eru aðferðir sem hafa verið notaðar og stungið upp á í baráttunni gegn höfundaréttarbrotum í gegnum tíðina og ég hef nú haldið fleiri en eina og fleiri en tvær ræður um af hinu og þessu tilefni hér. Í þeirri umræðu kemur aftur og aftur upp spurningin um hversu raunhæft sé að beita þessum aðferðum. Þess vegna finnst mér áhugavert að þarna sé í raun og veru strax hoppað inn í þá umræðu að kalla úrræðið sérstaklega raunhæft, ekki endilega sérstaklega heppilegt eða sérstaklega við hæfi eða sérstaklega lögmætt eða sérstaklega réttmætt. Nei. Sérstaklega raunhæft eins og það sé einhver spurning um það hvort það sé raunhæft eða ekki. Mér finnst það hitta naglann svolítið á höfuðið, virðulegur forseti, því að það eru áhöld um það hvort það sé raunhæft eða ekki. Málið er að það er ekkert sérstaklega raunhæft yfir höfuð að beita þeirri aðferð.

Það eru kannski ekki alveg allir eins og ég með VPN-áskrift þar sem hægt er með einum takka eða einni skipun í mínu tilfelli að tengja sig við meira eða minna hvaða land sem er. En það er ekkert mál að gera það. Um daginn langaði mig aðeins að sjá heiminn út frá Suður-Kóreu og tengdi mig bara í gegnum Suður-Kóreu, get gert það reyndar hér og nú. — Svona má aldrei gera, þetta virkar ekki. — Jú, ég er kominn til Suður Kóreu. Ég er núna á internetinu í Suður-Kóreu. Flóknara var þetta ekki.

Nei, þetta er ekki raunhæft, virðulegur forseti. Þessar aðferðir að ætla að láta milliliði stöðva fólk í að komast í það sem það vill komast í munu aldrei virka, aldrei. Og vonandi ekki vegna þess að um leið og slíkar aðferðir fara að virka erum við komin með yfirvöld með þvílíka stjórn yfir upplýsingasamskiptum að við ættum öll að óttast þau yfirvöld, sama hver þau eru. Jafnvel í lýðræðisríkjum, eins og við þekkjum dæmi um, geta komist til valda óþokkar sem eru alveg reiðubúnir til þess að misnota völd sín. Ég er ekki að tala um vestan hafs, ég er að tala um Þýskaland 1932 og 1933. Það getur gerst, virðulegi forseti. Þá er eins gott að við séum ekki búin að framselja og venja okkur á að framselja til yfirvalda heimildir til að stjórna lífi okkar um of. Þess vegna þurfum við friðhelgi einkalífs. Þess vegna þurfum við tjáningarfrelsi. Þess vegna þurfum við lýðræðislega öryggisventla, aðhald og mótvægi og þau grunngildi sem Píratar eru stanslaust að kalla eftir og rífast yfir.

Ég gat ekki á mér setið, virðulegur forseti, að nefna þetta með raunhæfa úrræðið vegna þess að það er ekkert raunhæft og sem betur fer ekki. Þetta mál hefur þá vankanta að verið er að veita ansi mörgum stofnunum þessa lögbannsheimild. Hún er í eðli sínu vond, sama hversu nauðsynleg hún gæti verið. Þó verð ég að setja þann fyrirvara við þetta allt saman að mér þykir samt sem áður ólíklegt að þetta úrræði verði notað fyrst um sinn, í það minnsta ekki til gegndarlausra, æðisgenginna og hömlulausra lokana hér og þar og út í bláinn og úti um allt. Maður hefur meiri áhyggjur af því að slíkt raungerist þegar kemur að höfundaréttarbrotum vegna þess að þau eru svo miklu algengari og það er miklu meiri eftirspurn eftir höfundaréttarvörðu efni án greiðslu en eftir tilteknum fjármálagerningum eins og smálánum eða einhverju því um líku. En í grundvallaratriðum er aðferðin sem er lögð til sú sama og hún er af sömu ástæðum í grundvallaratriðum röng.

Ég sakna þess líka, ég finn það alla vega ekki í reglugerðinni enn þá, ég á eftir að lúslesa hana, og ég finn það ekki í frumvarpinu hvernig síðan er haldið utan um lögbann sem er lagt á. Þetta er svolítið mikilvægur punktur. Segjum sem svo að upp komi sú staða að það þurfi að setja lögbann á eitthvert smálánafyrirtæki sem er að rukka 800 milljón prósent vexti eða eitthvað, en það hýsir vefinn sinn einhvers staðar í landi þar sem er erfitt að reyna að loka hlutum, ég ætla ekki að nefna nein lönd en það er fullt af löndum þar sem er erfitt að fá vefsíðum lokað. Það næst ekkert í eigandann, hann finnst hvergi, en hann býður upp á smálán á íslensku og tekur við íslenskum kreditkortum og er að koma íslenskum neytendum í vandræði. Hvað gerum við þá? Kannski myndum við beita lögbanni, þ.e. heimta að Síminn og Vodafone og Hringdu og Símafélagið og þannig fyrirtæki myndu loka á þessa vefsíðu. Segjum sem svo að það sé bara fullkomlega lögmætt og gefum okkur það sem á ensku heitir „best case scenario“, þ.e. í besta falli. Lítum á þetta þannig. Mér finnst samt sem áður vanta að það liggi fyrir einhvers staðar miðlægt hvaða vefi er búið að loka á og hvað þurfi að gerast til að það sé opnað á þá aftur. Hvort sem notuð er lénsheitakerfissía, þ.e. DNS blocking eða IP-tölu sía, þá stendur eftir að bæði DNS-nafn og IP-tala geta verið notuð aftur, sér í lagi IP-talan vegna þess að það er orðinn mikill skortur á þeim, það er tæknileg umræða sem ég fer kannski ekki út í hér og nú. En það er algengt að IP-tölur séu endurnýttar fyrir nýja aðila. Þá er mikilvægt að ekki sé eitthvert gamalt lögbann út af allt öðrum aðila sem er löngu orðið óþarft og er jafnvel búið að aflétta en tæknilega hindrunin er enn þá til staðar. Það þarf að vera yfirsýn yfir þetta og ég finn það ekki í frumvörpunum sem eru til umræðu í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég hef ekki lúslesið þessa reglugerð enn þá, ég mun gera það, en býst ekki við að þetta sé þar.

Þetta er einn af þeim hlutum sem oft eru bara svolítið hunsaðir í umræðunni því að þeir virðast í fljótu bragði ekki skipta neinu sérstöku máli. En þetta er líka einn af þeim hlutum sem skipta engu sérstöku máli fyrr en þeir eru orðnir óviðráðanlegir, þeim svipar til mengunar á þann hátt. Ef við myndum bara rusla smá væri það ekkert rosalega mikið atriði. Ef við myndum bara losa smávegis af CO2 út í andrúmsloftið væri það allt í lagi. En það er ekki allt í lagi að henda fullt af rusli og losa fullt af CO2 og það er engan veginn í lagi að bregðast við því einungis þegar vandinn er orðinn það stór að ekki er hægt að vinda ofan af honum.

Maður hefur aðallega áhyggjur af svona heimildum þegar það á að hindra fólk í að gera eitthvað á netinu sem er rosalega mikil eftirspurn eftir, sér í lagi að sækja sér höfundaréttarvarið efni án endurgjalds, það er kannski það sem er háværast í umræðunni, en það eru líka aðrir hlutir sem fólk hefur sýnt áhuga á og stjórnmálamenn hafa sýnt áhuga á því að sía út með sama hætti, nú síðast klám. Árið 2013 kom sú fráleita pæling fram og munaði litlu að það yrði ákveðið réttindalegt slys nokkrum árum síðar í öðru samhengi, það snerist ekki um síun heldur hleranir vegna þess að klám er enn þá bannað á Íslandi af einhverjum ástæðum sem mér finnast reyndar fáránlegar.

Þá verður að spyrja sig síðustu spurningarinnar sem ég ætla að skilja eftir í þessari ræðu, virðulegur forseti: Ef þetta er í lagi, hvers vegna er þá ekki í lagi að beita sömu aðferð til að hindra fólk í að hafa aðgang að einhverju öðru sem við viljum ekki að það hafi aðgang að? Ef við segjum að það eigi líka að hindra fólk í því erum við komin á fjári hálan ís, mjög hálan ís. Þá er hann reyndar farinn að brotna undan okkur ef eitthvað er. Mér finnst þetta vera háll ís, ekki vegna þess að þessi reglugerð ein og sér eða þessi frumvörp ein og sér muni hafa þetta neikvæðar afleiðingar á nettæknina og í kjölfarið fyrir réttindi fólks, heldur vegna þess að ef okkur finnst þetta í lagi verðum við að geta aðskilið það og skýrt hvers vegna okkur finnst það ekki í lagi í öðrum tilfellum, svo sem þegar um er að ræða klám, fjárhættuspil, höfundaréttarvarið efni sem er dreift án leyfis eða eitthvað annað sem fólk vill losna við af netinu, hatursáróður, hvaðeina. Þetta eru vandamálin sem steðja alltaf að okkur. Þetta er ástæðan fyrir því, virðulegi forseti, að þessi aðferð er alltaf röng að mínu mati. (Forseti hringir.) Við eigum ekki að fara þá leið. Við eigum að beita öðrum leiðum sem virka. (Forseti hringir.) Það gleður mig þó, verð ég að segja að lokum, að það lítur ekki út fyrir að það verði þörf á því að beita þeim úrræðum samkvæmt því sem ég hef heyrt í nefnd hingað til.