150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2020.

2. mál
[16:53]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu en ég tel að mér sé skylt að gera grein fyrir breytingartillögu sem ég hef lagt fram á þskj. 660 varðandi töflu í 2. mgr. a-liðar 36. gr. frumvarpsins. Hér er í raun aðeins um tæknilega leiðréttingu að ræða vegna breytinga á tollskrá sem tekur gildi um komandi áramót en auk þess er vert að benda á að það bætist líka við eitt nýtt tollnúmer. En að öðru leyti er hér um fullkomlega tæknilega breytingartillögu að ræða.