150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta hafa borist bréf frá formönnum þingflokka Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um að 7. þm. Suðurk., Silja Dögg Gunnarsdóttir, og 1. þm. Reykv. s., Sigríður Á. Andersen, verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þær 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Jóhann Friðrik Friðriksson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Hildur Sverrisdóttir.

Þau hafa bæði áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.