afbrigði.
Herra forseti. Ég geri hvort tveggja í einu, fer í fundarstjórn og um atkvæðagreiðsluna. Í fyrsta lagi munum við leggjast gegn þessu, einfaldlega vegna þess að ekki er búið að ná samkomulagi milli stjórnar og stjórnarandstöðu um lyktir mála á næstu dögum. Ég vona hins vegar að það verði gert, það var ágætisandi í morgun og ég vona að hann haldi áfram þannig. Hins vegar ætla ég líka að gera athugasemdir, um leið og ég fagna því að sjá þá hv. þingmenn, sem eru boðaðir hingað inn í dag, og benda á að það var auðvitað gert samkomulag um útpörun og svo tilkynnt einhliða að það virkaði ekki lengur. Þegar fólk á í samskiptum og byggir á trausti hvert við annað er miklu vænlegra að það haldi bara allan tímann. En ég vona að þetta hafi ekki stór áhrif á framvindu dagsins og við náum einhvers konar samkomulagi hérna fyrir lok dags.