150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði um dagskrármál.

[13:35]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Nú hafa allmargir beðið um orðið og forseti upplifir það ekki endilega svo að þeir ætli að gera grein fyrir atkvæði sínu heldur tala um mál almennt þannig að forseti stöðvar atkvæðagreiðsluna og gefur þeim orðið sem vilja tjá sig um fundarstjórn forseta eða hvaðeina það er. (Gripið fram í: … taka tveir fyrir einn.) [Hlátur í þingsal.] Það er vel þegið en forseta finnst óeðlilegt að þessu sé blandað saman við liðinn að gera grein fyrir atkvæði sínu. Þetta er ekkert annað en fundarstjórn forseta eða skoðanaskipti af því tagi.