150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.

[13:42]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Mig langar að ræða annað sem er sú fáránlega staða að hér sé sett á dagskrá 449. mál, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, um svokallaðan viðbótarsamning íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar. Kirkjujarðasamkomulagið svokallaða er óheiðarlegasti samningur sem ég hef nokkurn tímann vitað af. (Forseti hringir.)

(Forseti (SJS): Þetta mál er á dagskrá þessa fundar og efnisleg umræða um það á ekki heima undir fundarstjórn forseta.)

Hér er sett á dagskrá mál sem varðar allra óheiðarlegasta samning sem gerður hefur verið — fyrirgefið, forseti truflaði ræðumann. Það er til algjörrar skammar, virðulegi forseti, að þessi mál, viðbótarsamningurinn, séu sett á dagskrá með þessum fyrirvara þegar ljóst er að nefndin fær málið ekki til fullrar meðferðar miðað við tímarammann sem við setjum okkur hér. Það er ljóst að við ræðum þetta ekki nógu vel og um er að ræða samning sem bindur kynslóðir framtíðarinnar áfram við þetta hörmulega samkomulag við ríkiskirkjuna, sem að mínu mati er, eins og ég segi, óheiðarlegasti samningur sem gerður hefur verið á Íslandi. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég verð að gera athugasemd við að vera truflaður svona. Ég ætla að koma aftur í ræðu á eftir.