150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.

[13:44]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti minnir á að þegar mál eru á dagskrá fundar á efnisleg umræða um þau heima þar en ekki undir liðnum um fundarstjórn forseta. Hv. þingmaður var með efnislega umfjöllun um inntak þessa samnings og það vill forseti meina að eigi frekar heima í umræðunni um málið sjálft en ekki undir liðnum um fundarstjórn forseta.