150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.

[13:46]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hv. þm. Birgir Ármannsson er auðvitað næmari en flest okkar hinna. Ekki er nóg með að hann hafi tekið að sér að útskýra ógreidd atkvæði fyrir nokkrum árum heldur þóttist hann í síðustu eða þarsíðustu viku sjá inn í einhvers konar hliðarveruleika hjá þingmönnum sem voru í stjórnarandstöðu. Ég ætla bara að biðja hann að láta það algjörlega eiga sig að geta sér til um störf okkar í stjórnarandstöðunni. Hér hefur gengið skæð flensa, fólk er önnum kafið og hefur ekki haft tíma. [Háreysti í þingsal.]

(Forseti (SJS): Ró í salnum.)

Við skulum láta það liggja á milli hluta. [Kliður í þingsal.] Við áskiljum okkur auðvitað rétt (Gripið fram í: Já, já.) til að vera mætt af sanngirni, til þess að á kröfur okkar sé hlustað, ég tala nú ekki um þegar hæstv. fjármálaráðherra er búinn að skrifa undir stjórnarsáttmála sem á að sýna Alþingi sérstaka virðingu. (Forseti hringir.) Ég ætla að biðja hv. þm. Birgi Ármannsson að láta sér nægja að halda saman sínu fólki. Mér hefur sýnst það býsna erfitt.