viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Við skulum tala hreint út, við skulum ekkert láta eins og það hafi ekki verið skipulögð aðgerð þegar yfir 20 þingmenn stjórnarandstöðunnar yfirgáfu húsið í gær þegar atkvæðagreiðsla var að hefjast vegna þess að þeir voru búnir að telja það út að vegna forfalla hjá stjórnarflokkunum næðu stjórnarflokkarnir ekki þeim 32 þingmönnum sem nauðsynlegir eru til að afgreiða afbrigði. Við skulum ekkert vera með neinn leikaraskap, hv. þm. Logi Einarsson.
Þegar svona brögðum er beitt í þingsal verða stjórnarflokkarnir bara að manna þau sæti sem þeir eiga með varamönnum ef þannig ber undir. Það er ekkert flókið. Við hv. þingmenn getum ekki haft fyrirkomulagið þannig, þrátt fyrir að það sé eðlilegt að taka tillit til stjórnarandstöðunnar, að hér ráði stjórnarandstaðan gersamlega ferðinni, minni hluti þingsins. Það er ekki svoleiðis.