viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Ég bið herra forseta um að aðstoða stjórnarandstöðuþingmenn við að fá að halda ræðupúlti þegar þeir eru í púltinu og reyna að fá stjórnarliða til að hemja sig í frammíköllum rétt á meðan stjórnarandstöðuþingmenn standa í pontu og byrja ekki á bjöllunni á sama tíma. Það er mjög truflandi að standa hér og fá fyrst ráðherrabekkinn urrandi fyrir aftan sig og svo stjórnarþingmennina æpandi rétt á meðan við höfum orðið. Ég bið hæstv. forseta um að aðstoða okkur við að hafa hér málfrelsi, jafnt á við aðra.
Varðandi það hvað við erum að fara að gera hér seinna í dag verður það væntanlega undir þeim lið þegar við gerum grein fyrir atkvæðum okkar en ég verð þó að segja að stjórnarandstöðuþingmenn hafa haldið uppi starfinu í allt haust vegna þess að ráðherrar hafa ekki skilað inn frumvörpum. Þess vegna er staðan eins og hún er. Og þá hefur ekki staðið á okkur í stjórnarandstöðunni að mæta í vinnuna.