viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Ég kom í ræðu um fundarstjórn áðan til að mótmæla því að tiltekið mál væri sett á dagskrá. Um leið og ég minntist á málið fór forseti að berja í bjölluna.
(Forseti (SJS): Nei.)
Mér finnst það óþolandi, virðulegur forseti. Ég hlýt að geta mótmælt því að eitthvað sé sett á dagskrá og nefnt málið sem ég er að tala um að ég sé að mótmæla að sé sett á dagskrá. Mér finnst þetta óþolandi. Ég vil bara fá að klára ræðuna mína. Ég misnotaði ekki þennan lið og er bara að tala um dagskrá dagsins í dag.
Mér finnst ótækt að setja þetta mál á dagskrá vegna þess að þetta kirkjujarðasamkomulagsbix sem heldur hérna áfram fær enga almennilega þinglega meðferð á þessum tímapunkti. Það kemur inn svo seint að það fær ekki umræðu og fær ekki fullnægjandi meðferð í nefnd eins og ég fór yfir áðan. Svo á að afgreiða þetta fyrir áramót, rétt fyrir jól, nota jólin sem enn eina tilfinningakúgunina til að koma hagsmunum þjóðkirkjunnar að umfram hagsmuni annarra trúarsöfnuða í landinu. (Gripið fram í: Kemur ekki málinu við.) Það kemur málinu víst við og þess vegna er ég að mótmæla því að þetta sé sett á dagskrá. Ég hafna því að ég sé að fara (Forseti hringir.) út fyrir efnið með því að tala um dagskrána. (Gripið fram í: Hallelúja.)