viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.
Ég geri ráð fyrir að hér séu yfir 40 vitni að því að hv. þingmaður var kominn inn í efnislega umræðu um inntak þess samnings (Gripið fram í: Nei.) sem að baki frumvarpinu liggur og hafði um það stór orð. Það er eðlilegra að slíkt sé rætt þegar málið kemur á dagskrá hér á eftir. Þá má einnig koma á framfæri gagnrýni sem er réttmæt um það að málið … (HHG: … eftir ræðu …) Vill hv. þingmaður gjöra svo vel að leyfa forseta að tala í friði? (Gripið fram í: Ég spyr þess sama.) Eitt verður ekki liðið, að þingmenn grípi fram í fyrir forseta sínum. Þessum fundi verður slitið ef menn ætla að halda slíku áfram. (Gripið fram í.)
Gagnrýni sem er réttmæt á það að málið hafi komið of seint fram á að sjálfsögðu einnig að koma á framfæri í umfjöllun um málið sem og að þinginu gefist of skammur tími til að skoða það ef það verður afgreitt fyrir áramót.
Það er ævagömul venja hér að láta þingmenn ekki vanvirða dagskrána með þeim hætti að grauta saman umræðum um mál sem þegar eru á dagskrá fundar og taka þau undir öðrum liðum. Forverar mínir hafa hér mann fram af manni haldið mönnum við efnið í þessum efnum. Það þori ég að ábyrgjast með minni þingreynslu. Forseti er ekki að gera neitt annað en það sem fellur undir þá skyldu hans að halda góðri reglu á fundum.