viðvera þingmanna við atkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Það er óhætt að segja að maður skynji hérna einhvern pirring út af því hvernig þingstörfin hafa gengið síðustu daga. Skemmst er frá því að segja að þau gengu ljómandi vel framan af hausti á meðan stjórnarandstaðan hélt þeim uppi með sínum málum. Það er kannski hugmynd að hafa stjórnarandstöðuna við stjórnvölinn áfram og klára þetta.
Ég kem hins vegar upp í ræðu um fundarstjórn til að taka undir með hv. þm. Halldóru Mogensen þar sem hún svaraði hv. þingflokksformanni Vinstri grænna sem ýjaði að því að Píratar hefðu brotið samkomulag um pörun. Ég stend hér sem þingflokksformaður Viðreisnar og segi að ég kannast ekki við neitt samkomulag. Það er ansi ódýrt að fara þá leið með þær eftiráskýringar. Þær eru bara ekki réttar, hér var ekkert samkomulag á milli stjórnarandstöðuflokka og stjórnarflokka um neina pörun. Það getur vel verið að slíkt samkomulag hafi verið gert á milli einstakra flokka en það er þá ekki brotið af öðrum óviðkomandi. Ég hafna þessari skýringu á því máli.