150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[13:56]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera tilraun til að tjá hug minn án þess að vera truflaður við það af forseta. Málið sem hér er sett á dagskrá er sett á dagskrá rétt fyrir jól þegar þingið þarf að fara heim. Þetta er áframhald af máli sem er kallað kirkjujarðasamkomulagið, þar sem það samkomulag er enn frekar fest í sessi. Samkomulagið felur í sér að ríkið er víst búið að kaupa einhverjar jarðir en verðið er talan átta á hlið, þ.e. óendanleiki. Ríkið mun borga af þessu að eilífu. Mér er fyrirmunað að skilja hvaða hv. þingmaður, eða nokkur aðili í samfélaginu, myndi gera slíkan samning nema ef ekki væri verið að semja um þá hagsmuni sem viðkomandi þykist vera að semja um. Það er það sem mér finnst óheiðarlegt við þetta samkomulag. Það er óheiðarlegt hvernig unnið er að þessu, að ráðherrar fari í það að semja við ríkið. Svo er einhver neðanmálsgrein í fjárlögum sem fær enga almennilega umfjöllun hérna. Síðan kemur þetta frumvarp inn sem fær heldur enga almennilega umfjöllun, hvorki í þingsal né í nefnd, og verður væntanlega afgreitt hér fyrir jól vegna þess að það er svo mikil tímapressa út af jólunum, heilögustu hátíð kristinna manna að því er sagt er.(Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Það er alger ósvinna að þetta mál sé hér á dagskrá og ef það þýðir að ríkið eigi í einhverjum vandræðum (Forseti hringir.) með að efna loforð sín þá er það vandamál ríkisins.