150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[13:58]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það hefur jafnvel verið kvartað yfir því að það hafi orðið óþægilega hröð endurnýjun í þessum sal og hér skorti reynslu en það virðist vera sama hversu hröð endurnýjun verði, alltaf lifa gömul og úr sér gengin vinnubrögð. Það er alveg með ólíkindum að hér sé verið að setja á dagskrá þingsins mál nokkrum dögum áður en á að fresta þingi og ætlast til þess að því sé lokið án nokkurrar efnislegrar umræðu. Nóg er af slíkum málum fyrir sem eru seint fram komin af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Rétt að minna á að minni hlutinn þurfti að halda uppi umræðu í þessum sal langt fram eftir hausti því að það bólaði ekkert á neinum málum frá ríkisstjórn. Fjöldi mála á dagskrá á forgangslista ríkisstjórnar núna hefur engan veginn hlotið nægjanlega umræðu í þingsal, hvað þá nefndum, og enn á að bæta í. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð og sérstaklega ekki af hálfu ríkisstjórnar sem boðaði annað og betra.