150. löggjafarþing — 42. fundur, 10. des. 2019.
afbrigði.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hafa talað. Maður furðar sig á því að það sé alltaf verið að tala um virðingu þingsins og ný vinnubrögð en alltaf dettum við í nákvæmlega sömu vinnubrögðin aftur og alltaf verður þetta nákvæmlega eins. Ég spyr bara: Hvar eru þessi nýju vinnubrögð, virðing fyrir þinginu og breytingar á starfsvenjum? Það er kominn tími til og ég mun segja nei við þessu.