afbrigði.
Virðulegur forseti. Það er mjög undarlegt að vera að setja á dagskrá þetta mál um stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar því að það á að klára það í ár, í ríkisreikningi 2019, hver afstemming sé af eignum sem færðust yfir til ríkisins frá kirkjunni. Það er gerður samningur um niðurfellingu og breytingu á starfsháttum áður en við vitum í rauninni um hvað það mál snýst og hver skuldbinding ríkisins sé gagnvart þeirri eignatilfærslu. Þetta er algjörlega rangur tími til að reyna einu sinni að fjalla efnislega um málið. Í þessum samningi er t.d. einfaldlega órökstutt og þar af leiðandi ólöglegt ákvæði um samningstíma samkvæmt lögum um opinber fjármál. Að reyna að troða því eitthvað í gegn fyrir áramót er gjörsamlega fáránlegt.
Ég segi hreint nei við því.