afbrigði.
Forseti. Ég er á rauða takkanum. Ég greiði ekki atkvæði með þessum afbrigðum af því að mér finnst ólíðandi hversu seint mál koma á dagskrá trekk í trekk. Við erum alltaf að lenda í þessu og mér finnst kominn tími til þess að meðfram því að taka umræðu um þessi þingmál tökum við umræðuna um af hverju þau koma svona seint fram. Þá er ég að tala um heiðarlega umræðu og að horfa á það heiðarlega. Hvað klikkar? Hvað gerir að verkum að mál koma inn svona ofboðslega stuttu fyrir þingfrestun og við höfum engan tíma fyrir faglega þinglega meðferð? Það leiðir af sér mistök og slæma lagasetningu. Hvað er það sem virkilega gerir að verkum að við erum að bregðast? Það væri óskandi að forseti væri jafn reiður yfir þessum vinnubrögðum og hann er yfir einhverjum formsatriðum í liðnum um fundarstjórn forseta. En það virðist vera algerlega í takt við þessa ríkisstjórn. Það er allt bara á yfirborðinu. Þetta hefur ekkert með innihald að gera heldur bara það sem fólk sér. Þetta er yfirborðskennt.