150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[14:03]
Horfa

María Hjálmarsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þingmaður greiðir atkvæði gegn þessari flýtimeðferð á málum sem er alveg ljóst að verða ekki kláruð fyrir jól og ekki einu sinni byrjað á. Það hefur ekkert verið um það rætt að funda eigi hér á milli jóla og nýárs og því er þessi flýtir núna á málum sem ekki eru dagsetningarmál óþarfur með öllu. Fyrir mér lítur þetta út eins og staðið sé í vegi fyrir að þingmannamál komist á dagskrá og því ákveðið að setja á dagskrá mál sem vel geta beðið umræðu þar til í janúar þegar þing kemur aftur saman. Ég greiði því atkvæði gegn þessari afgreiðslu.