150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[14:04]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Miðað við það hvernig ríkisstjórnin kýs að fara með þetta mál, viðbótarsamkomulagið sem hér er lagt til að verði sett á dagskrá, kirkjujarðasamkomulagið, læðist að mér sá grunur að ríkisstjórnin þori hreinlega ekki að leyfa því máli að fá almennilega umfjöllun, hvorki hér í þinginu, hvort sem er hér í pontu, í nefndinni eða í fjölmiðlum, né annars staðar, og ekki einu sinni á árstíma þar sem fólk hefur tíma til að velta fyrir sér slíkum málum. Hér er um gríðarlega stóra hagsmuni að ræða sem varða kynslóðir til framtíðar, við skulum bara hafa það á hreinu.

Þetta mál mun ekki fá þá þinglegu meðferð sem það á skilið, þá lágmarks þinglegu meðferð sem það á skilið, miðað við tímasetningar sem við búum við núna, í það minnsta. Við sjáum til hvernig fer í nefnd. Ég geri fastlega ráð fyrir því að það verði lagt til að málið fari ekki í umsagnarferli eða þá afskaplega stutt. En þá vona ég bara að aðilar í samfélaginu sem eru ekki uppteknir við að undirbúa sig fyrir jólin hafi tíma til að fjalla um þetta mál vegna þess að þessi algjörlega óverjandi vitleysa, virðulegi forseti, fer í gegn á þeim forsendum að því sé þrýst í gegn (Forseti hringir.) án umræðu vegna þess að menn vita hvað það er óheiðarlegt. Þeir vita hvað þetta mál er mikill hroðbjóður.