150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[14:05]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Bara út af þessari atkvæðagreiðslu, um að heimila að málið sé tekið á dagskrá, þá skil ég ekki andstöðu manna við að fá málið á dagskrá, manna sem greinilega vilja ræða það vel og ítarlega í þingsal eins og hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson vill gjarnan gera. Við getum tekið það á dagskrá með þessari atkvæðagreiðslu og svo tökum við efnislega afstöðu til málsins í framhaldinu. Þetta eru tveir aðskildir þættir.

Þau tvö mál sem verið er að greiða atkvæði um núna, þ.e. hvort heimila skuli að þau séu tekin á dagskrá, eru eðli málsins samkvæmt dagsetningarmál. Annað er þetta mál varðandi kirkjuna sem er áramótamál, alveg skýrt og greinilega. Hitt málið, sem varðar skráningu raunverulegra eigenda, er smávægilegt leiðréttingarmál varðandi dagsetningu sem reyndar er ekki flutt af ríkisstjórn heldur af allri efnahags- og viðskiptanefnd sameiginlega. (Forseti hringir.) Það er kannski rétt að þingmenn hafi það í huga vegna þess að þess misskilnings virðist gæta að svo sé ekki.