150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

afbrigði.

[14:07]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Framan af hausti gerðu þingmannamál stjórnarandstöðunnar það að verkum að þingið varð ekki að athlægi, að hér væru einhver verkefni til að ræða. Síðan tíndust stjórnarmálin nokkuð seint inn og of seint, og það er út af fyrir sig alvarlegt. Ég segi hins vegar nei við þessu núna vegna þess að mér finnst sjálfsagt mál að samkomulag náist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að greiða fyrir okkar málum líka á þessum síðustu dögum. Annars er sífellt verið að ganga á velvild einhvers og svíkja það svo alltaf. Það er ekkert mál að hittast hér kl. þrjú og klára þetta. En við skulum þá gera það.