störf þingsins.
Herra forseti. Ég hef mjög miklar áhyggjur af heilbrigðiskerfinu okkar. Ég hef töluverðar áhyggjur af heilbrigðiskerfinu okkar. Ég er ekki ein um það ef marka má umræðuna úti í samfélaginu. Þrátt fyrir að við viljum alltaf telja okkur til norræns velferðarríkis, bera okkur saman við Norðurlöndin í hinu og þessu og láta eins og við séum framúrskarandi, getum við eiginlega ekki leyft okkur að tala lengur um að við séum framúrskarandi, heldur þurfum að fara að tala um að heilbrigðisstarfsfólkið okkar, starfsfólkið sem enn þá starfar innan heilbrigðisgeirans, sé framúrskarandi. Það fólk hefur tekið á sig ómennskt álag í boði stjórnvalda, ómennskt álag, og nú hefur forstjóri Landspítala, þjóðarsjúkrahússins okkar, boðað að hann muni segja upp öllum fastlaunasamningum á Landspítalanum. Hvað þýðir það? Það þýðir einfaldlega að okkar frábæra starfsfólk á öllum sviðum innan Landspítala – háskólasjúkrahúss — sem tekur við öllum þeim verkefnum sem aðrar heilbrigðisstofnanir um landið verða að senda frá sér vegna fjárskorts, Landspítalinn verður að taka við þessu öllu saman — starfsfólkið sem þar starfar leitar annað og það býr til lengri og lengri biðlista.
Við setjum skammarlega lítið til heilbrigðismála ef við berum okkur saman við Norðurlöndin. Í nýrri skýrslu OECD kom fram að framlag okkar er rúmlega 8% af landsframleiðslu en Svíar setja t.d. 11% af landsframleiðslu til heilbrigðismála. Þetta er staðreynd (Forseti hringir.) og það er galið að horfa ekki á staðreyndir mála þegar við fjöllum um heilbrigðiskerfið og fjárframlög til þess.