150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

störf þingsins.

[14:16]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Á undanförnum árum hefur hagvöxtur á Íslandi verið mestur á Suðurnesjunum. Þar munar mest um 16% á árinu 2017 þegar landsframleiðslan jókst að meðaltali um 10% í landinu. Það er því alveg ljóst að Suðurnesin eru ótvírætt mikilvæg fyrir þjóðarbúið. En hvernig búum við síðan að Suðurnesjum? Þangað liggur ein rafmagnslína. Þar er mikil eftirspurn eftir auknu rafmagni og öryggi. Almannavarnir hafa skoðað afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum og segja að þar til önnur lína komi á Suðurnes verði ótryggt um orku á Suðurnesjum. Til þess að halda áfram því hagvaxtarskeiði sem þar hefur verið þarf að tryggja ný tækifæri í rafmagni og viðhalda því öryggi sem er í rekstri fyrirtækja og alþjóðaflugvallarins í Keflavík. Það er áhugi á því hjá bílaleigum sem eru með tugi þúsunda bíla að rafvæða flotann. Það er ekki hægt. Það vantar til þess rafmagn. Það er ekki grundvöllur til að laða að fleiri gagnaver því núverandi lína ber ekki aukið rafmagn á Suðurnes. Rafvæðing skemmtiferðaskipa kemur ekki til greina af sömu ástæðum og frumkvöðlastarfsemi þarf flest hver aukið rafmagn. Þess vegna segi ég, virðulegur forseti, að ef það er einhver alvara í orkuskiptum þarf tvennt til: raforku til að taka við af jarðefnaeldsneyti og flutningskerfi til að koma raforkunni til notenda.