150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

störf þingsins.

[14:20]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Nýlegar tölur frá OECD um kostnað af íslenska heilbrigðiskerfinu eru áhyggjuefni. Það er ýmislegt sem er áhyggjuefni í þessum tölum eða a.m.k. áhugavert. Við stöndum okkur til að mynda mjög vel á flestum þeim mælikvörðum sem mæla árangur í heilbrigðisþjónustu. Við stöndum okkur vel á flestum lýðheilsukvörðum, en við notum minna fé sem samfélag. Maður veltir því fyrir sér hvað valdi þessu. Er það bara það að við séum með miklu betra starfsfólk í heilbrigðiskerfinu en allir aðrir? Ég held ekki. Ég held að það sé ekki tilfellið. Við erum með frábært heilbrigðisstarfsfólk en það skýrir ekki allan muninn. Er það af því að þjóðin er yngri? Er það það að sveitarfélögin kosta miklu fé í forvarnastarf? Hvaða þættir eru það sem eru þarna að baki? Við þurfum að vita það sem samfélag. Slík vitneskja hjálpar okkur til að taka ákvarðanir um það hvernig við eigum að verja opinberu fé.

Ég held að við þurfum að halda áfram á þeirri braut að lækka kostnaðarþátttöku sjúklinga. Þessi ríkisstjórn hefur gert það og staðið sig bærilega í því, svo vel að það sem íslenskir notendur heilbrigðisþjónustu greiða á hvern einstakling er í krónum talið það lægsta sem gerist á Norðurlöndunum, en ekki það hæsta eins og áður var. Þarna eru að verða breytingar. En betur má ef duga skal. Sennilega felst lykilsvarið, eins og í öllu, í því að við þurfum að bæta okkur í hlutfallinu. En við þurfum líka að skoða aðra undirliggjandi þætti og hvernig við getum notað okkur þá til að halda áfram að bæta heilbrigðiskerfið.