150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

störf þingsins.

[14:22]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. 400 börn bíða í eitt ár eða eitt og hálft ár eftir greiningu á ADHD. Einnig bíða um 550 fullorðnir í allt að tvö ár eftir sömu greiningu hjá Þroska- og hegðunarstöð höfuðborgarsvæðisins. Á barna- og unglingageðdeild Landspítalans eru 100 börn á biðlista eftir að komast í meðferð, börn sem þurfa að komast í meðferð vegna fjölbreytts vanda, t.d. alvarlegs geð- og þroskavanda. Að foreldrar þeirra þurfi sjálfir að berjast með kjafti og klóm fyrir að fá þjónustu fyrir börn er fáránlegt því að álag á þeim er gríðarlegt vegna veikinda barna þeirra. Foreldrar eiga ekki að þurfa að berjast sjálfir fyrir sjálfsagðri þjónustu barna sinna á sama tíma og líf þeirra umturnast vegna veikinda þeirra. Að foreldrar eða börn þeirra hljóti e.t.v. skaða vegna þjónustuleysis er auðvitað ekki ásættanlegt og það er brýnt að bæta úr því strax. Það er engin önnur lausn til en að útrýma biðlistum barna strax og sjá til þess að heilsa foreldra skaðist ekki varanlega vegna álags, bæði líkamlega og andlega.

Er ekki kominn tími til að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að börn sem eru með geðraskanir og önnur alvarleg veikindi séu ekki á biðlista? Þar bendi ég sérstaklega á að fleiri úrræði vantar fyrir þau börn sem glíma einnig við fötlun. Foreldrar þeirra bera enn þyngri byrðar og þurfa eðlilega mun meiri hjálp. Það á einnig við um þau börn sem eru langveik og foreldra þeirra vegna þess að það er alveg sérkafli út af fyrir sig hvernig tekið er á þeim málum.

Hvað segir það um okkur alþingismenn að við getum ekki einu sinni gengið þannig frá málum að börn þurfi jafnvel að skaðast á biðlista eftir greiningu og meðhöndlun á sjúkdómum þeirra í dag?