störf þingsins.
Herra forseti. Það er spáð aftakaveðri um allt land í dag og á morgun. Eins og fram hefur komið verður þetta veður, ef það verður jafn slæmt og spár gera ráð fyrir, verra en við höfum séð áður enda hefur Veðurstofan flaggað rauða litnum í veðurviðvörunum í fyrsta skipti frá því að þetta nýja litakóðunarkerfi var tekið upp. Strandir og Norðurland vestra eru rauð en landið allt þess utan appelsínugult sem mun vera næststerkasta viðvörunin. Það er ljóst að óveðrið mun hafa mikil áhrif á skólahald, atvinnulíf og daglegt líf Íslendinga. Snjóflóðahætta er víða, samgöngur munu lamast, rafmagn er sums staðar farið af, eignatjón er viðbúið og fleira mætti telja til.
Björgunarsveitir landsins eru eðlilega með mikinn viðbúnað vegna veðursins og almennt hafa viðbragðsaðilar unnið að undirbúningi eins og hægt er. Fólk er eindregið hvatt til að halda sig heima og þá er ég komin að kjarna málsins hjá mér. Við erum hér á landi ekki óvön veðurofsa og leggjum við þær aðstæður traust okkar á lögreglu og aðra viðbragðsaðila, björgunarsveitir og fjölmiðla. Þessir aðilar hafi ekki brugðist trausti okkar og mér þykir mikilvægt að við leggjum það í púkkið sem við getum til að gera þeim vinnuna sem auðveldasta eða a.m.k. að gera þeim ekki erfiðara fyrir en þörf er á. Það er ljóst að verði veðrið eins brjálað og spáð er mun taka langan tíma að koma fólki til aðstoðar. Líklega munu viðbragðsaðilar þurfa að forgangsraða verkum sínum. Það er mikilvægt að taka fullt tillit til þeirra viðvarana sem eru að berast og vera ekki á ferðinni nema það sé brýnt.
Það er svo viðbúið að ef veðrið verður ekki eins slæmt og óttast er muni umræðan næstu daga snúast um að hér hafi verið farið offari í aðvörunum o.s.frv. — en getum við ekki verið sammála um að það eru betri fréttir en þær að tjón hafi orðið að óþörfu, að fólk hafi lent í vanda að ástæðulausu af því að það hunsaði viðvaranir eða að viðbragðsaðilar hafi ekki getað sinnt verkefnum sínum eða lent í hættu jafnvel við að bjarga fólki úr aðstæðum sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir? Getum við ekki verið sammála um að þrátt fyrir viðbúnað dagsins í dag séu það virkilega góðar fréttir ef veðrið reynist ekki jafn slæmt og við óttumst?