150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

störf þingsins.

[14:36]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Við erum enn og aftur minnt á þær aðstæður sem við getum búið við gagnvart náttúruöflunum hér á norðurhjara veraldar. Nú þegar fyrirtæki loka, stofnanir leggja niður starfsemi sína, foreldrar eru að sækja börnin í skóla og leikskóla, Háskóli Íslands fellir niður próf, neyðarstjórnir sveitarfélaga koma saman, rafmagn er víða farið af á stórum landsvæðum úti á landi og fólk er að taka fram kerti og útvarpstæki sem ganga fyrir rafhlöðum verðum við að minnast þeirra, virðulegur forseti, sem eru tilbúin að leggja það á sig að tryggja öryggi okkar, samborgara sinna, þess fólks sem tryggir viðbragðsþjónustu og neyðarþjónustu, bæði af hálfu hins opinbera og ekki síst björgunarsveitanna sem við búum svo vel að. Strax í gær voru þau farin að undirbúa viðbrögð sín og hafa nú verið að dreifa björgunarliði á þau svæði þar sem útlit er fyrir hvað versta veðrið.

Það er ekki sjálfsagt, virðulegur forseti, að búa við þær aðstæður í þessu landi að fjölmennur hópur fólks sem hefur hlotið til þess þjálfun og hefur undirbúið sig vel er tilbúinn að stíga út við þær aðstæður þegar við hin hyggjum að því að koma okkur heim í skjól. Það er vert að þakka fyrir það fórnfúsa starf, einmitt kannski á svona degi þegar við erum minnt svo tryggilega á þær aðstæður sem við búum við í þessu landi.

Fram undan er eitt stærsta fjáröflunarverkefni björgunarsveitanna, flugeldasala. Um það hefur skapast neikvæð umræða á undanförnum tveimur árum út af þeirri svifryksmengun sem tímabundið getur orðið um áramót. Hún verður hér reyndar marga aðra daga. Ég hvet til þess, virðulegur forseti, að allar ákvarðanir af hálfu stjórnvalda, af hálfu okkar hér sem um þetta fjöllum, tryggi að ekki verði farið fram með neinu offorsi í þessu. (Forseti hringir.) Það er allt of mikið undir þar sem er hryggjarstykkið í fjáröflunarstarfi okkar öflugu björgunarsveita. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)