störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða um náttúruöflin þótt sterk séu heldur mannanna öfl sem þarf stundum að hemja. Ujal Singh Bhatia og Thomas R. Graham eru dómarar við dómstól Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem láta af störfum í dag þar sem skipunartími þeirra er liðinn. Við brotthvarf þeirra verður aðeins einn dómari eftir en samkvæmt reglum dómstólsins er ekki hægt að dæma nema minnst þrír dómarar séu til staðar. Því er alþjóðaviðskiptadómstóllinn óstarfhæfur. Þetta er ekki óvænt niðurstaða heldur fyrirsjáanleg afleiðing þess að bandaríska ríkisstjórnin hefur staðið í vegi fyrir skipun nýrra dómara í þó nokkur ár, fyrst á tíma Obama vegna ágreinings um hæfisreglur en nú á tíma Trumps vegna andstöðu hans við alþjóðlegt regluvætt viðskiptakerfi og alþjóðasamvinnu.
Ef alþjóðaviðskiptadómstóllinn er óstarfhæfur má segja að GATT, GATS og TRIP-samningarnir og aðrir hliðstæðir og afleiddir samningar séu óframfylgjanlegir í raun. Deilumál sem koma upp hafa engan úrlausnarvettvang. Fyrir mestan part mun þetta ekki breyta neinu en mögulegt er að í einhverjum tilvikum muni einhver lönd nýta sér ringulreiðina til að undirbjóða markaði, svindla á samningum og hvetja til ósanngjarnra viðskiptahátta. Sum lönd hafa farið að undirbúa sig undanfarið með því að gera tvíhliða samninga um sjálfstæða gerðardóma, t.d. Evrópusambandið, Kanada og Noregur.
Forseti. Ég óskaði eftir minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu um aðgerðir Íslands til að verja alþjóðaviðskiptakerfið og verja okkar hagsmuni meðan dómurinn er óstarfhæfur. En hætt er við að ef Ísland gerir ekki sambærilega samninga og tryggir sína hagsmuni, að við getum orðið fórnarlömb þess skaða sem er verið að valda alþjóðaviðskiptakerfinu með þessari „blokkeringu“, bæði með óbeinum og beinum hætti, t.d. ef önnur lönd fara að undirbjóða á útflutningsmörkuðum sem við reiðum okkur á.
Við megum ekki við því að aðgerðaleysi verði til þess að þjóðernispólitík Trumps fari að grafa undan okkar viðskiptahagsmunum.