staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það er rétt, eins og ég sagði í framsögu minni, að hér er verið að útfæra það sem kemur fram í samkomulaginu þar sem kveðið er á um að frá 1. janúar 2020 séu starfsmenn þjóðkirkjunnar starfsmenn hennar en ekki opinberir starfsmenn. Það er sú útfærsla sem kveðið er á um í þessari breytingu. Við erum ekki að breyta samkomulaginu á nokkurn hátt eða taka á okkur nýjar skuldbindingar að þessu sinni. Í þessum samningi er í raun ekki verið að endurskrifa samkomulagið á neinn hátt heldur er þetta útfærsla á greiðslum þar sem við förum þessa leið. Kveðið var á um að fjöldi annarra útfærslna í samningnum gilti þar til samkomulag næðist um annað, eins og sagt var í samkomulaginu frá 1997, og hér er það samkomulag. Af hverju þetta komi ekki með öðru, spyr hv. þingmaður líka. Hinar breytingarnar eru stærri (Forseti hringir.) og kveðið er á um í samkomulaginu að ákvæðið varðandi starfsmennina taki strax gildi og sá undirbúningur er löngu hafinn.