150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:56]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum við að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn og starfshætti kirkjunnar og mér sýnist þetta vera bara hið besta mál að mörgu leyti. Það er hið besta mál að kirkjan sjái sjálf um sín launamál, ekki ríkið. En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er það sem segir í inngangi, með leyfi forseta:

„Í þessu frumvarpi er ekki lagt til að ákvæði falli úr lögum um Kristnisjóð o.fl. og lögum um sóknargjöld o.fl., en hugað verður að þeim breytingum á næstunni.“

Þá spyr ég: Hvaða breytingar eru á döfinni? Er það alger aðskilnaður ríkis og kirkju? Hvenær á næstunni? Er það á þessu þingi eða næsta þingi? Það væri mjög gott að fá að vita hvað þarna er á döfinni.