150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:57]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Niðurstaða þessarar útfærslu felur í sér bæði þá breytingu sem við ræðum um í dag í þessu frumvarpi, sem kveður einungis á um starfsmennina, en líka það sem þingmaður vísar í og kemur seinna. Ég býst við að á vormánuðum komi frumvarp þess efnis. Samkomulag er milli ríkis og kirkju að fella úr gildi sérstök lög um ákveðna sjóði sem hingað til hafa starfað á vegum kirkjunnar. Þessir sjóðir falla á brott og kirkjan sér um þá sjálf og er ekki sérstakt samband á milli ríkis og kirkju varðandi þá sjóði eða sérstök lög um þá heldur erum við að færa meira sjálfstæði til kirkjunnar til að halda á sínum eigin málum án þess að breyta nokkru um hvaða fjármuni hún fær, enda miðum við enn við kirkjujarðasamkomulagið frá 1997 sem er bara önnur umræða. En hér er útfærsla á því sem felur þetta í sér og er samkomulag milli ríkis og kirkju. Ég sé möguleika á því að það muni koma hingað á vormánuðum.