150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[14:59]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og mér sýnist þetta vera hið besta mál. Eftir því sem mér skilst er það í sjálfu sér rétt að þjóðkirkjan og starfsmenn hennar eigi að sjá um sín mál, bæði sóknargjöld og annað. Við getum rifist um hversu mikil þau verða og hvort ríkið á yfir höfuð að innheimta þau. En ég tel bara mjög líklegt að stefnt sé að því að alger aðskilnaður verði milli ríkis og kirkju. Er það ekki rétt skilið hjá mér að það sé bara á dagskrá að taka það upp? Eða er það alveg sérkapítuli út af fyrir sig?