150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[15:07]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Umræða um samninginn frá 1997 er bara önnur og miklu stærri umræða og það er ekki hlutverk mitt að réttlæta hann eða útskýra sérstaklega. Það þýðir hins vegar ekki að líta fram hjá því að þessi samningur var gerður á sínum tíma (Gripið fram í.) og ríkið hefur litið svo á að það sé bundið af honum. Það felur í sér hin ýmsu mál, m.a. þær jarðir sem þar eru undir og þá þjónustu sem kirkjan hefur verið að veita. Á grundvelli þess samnings er þessi viðbótarsamningur sem er ákveðin útfærsla á greiðslum. Það eru engar nýjar skuldbindingar sem við erum að greiða fyrir með þessu samkomulagi. Þetta er þvert á móti bara ný útfærsla á þeim skuldbindingum og mikil vinna liggur að baki þeirri útfærslu, sérstaklega á launum ákveðins hóps manna sem voru ákveðin af kjararáði en það er ekki til lengur. (Forseti hringir.) Það varð að fara í endurskoðun eftir að lög um kjararáð féllu úr gildi 2018 og koma með einhverjum hætti skikki á málið. Meðal annars þess vegna er þessi útfærsla valin.