150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[15:41]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og ágætum sessunaut mínum í fjárlaganefnd. Við höfum rætt þetta og þetta er ekki nýtt af nálinni, eins og hv. þingmaður veit. Hér er gerður samningur af hálfu ríkisvaldsins og væntanlega hefur verið farið yfir þau mál, lengd samningsins o.s.frv. Kjarni málsins er sá að um þjónustusamning er að ræða. Það er verið að kaupa ákveðna þjónustu fyrir, má segja, þetta endurgjald. Það má orða það þannig að fyrir þessar eignir komi greiðslur sem síðan fylgja þeirri þjónustu sem kirkjan veitir.

Þessi álitaefni hv. þingmanns eiga að sjálfsögðu rétt á sér, ég ætla ekkert að draga úr því, en ég vænti þess að ríkisvaldið eða þeir aðilar sem gerðu þennan samning fyrir hönd ríkisins hafi rætt þessa hluti og haft þá til hliðsjónar. Ég myndi segja að það sé kjarni málsins. Þeir sem gerðu samninginn hafi haft lög um opinber fjármál að leiðarljósi í þeim efnum, ég vænti þess.