150. löggjafarþing — 42. fundur,  10. des. 2019.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl.

449. mál
[16:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ágætt að við séum þá búin að afgreiða það að ríkissjóður sé ekki að borga niður höfuðstól skuldbindingarinnar. Eftir það er þetta bara umræða um vexti. Það er einfalt mál og kristallast kannski m.a. með hliðarsamtölum í þingsal að Píratar hafa lítinn skilning á vöxtum. Það er ekki bara áhugaleysi heldur virðist skilningur vera lítill. Það er ekki flókið að afvaxta vaxtagreiðslu og leiða út höfuðstól. Við getum tekið minna dæmi, sá sem fær 1 millj. kr. lán sem á eru 10% vextir og borgar 100.000 kr. af því á ári borgar aldrei krónu af höfuðstólnum. Þá bara lifir höfuðstóllinn út í hið óendanlega þangað til lántakinn ákveður að borga niður höfuðstólinn. Það er mjög gott að við séum komin á þann stað að við séum bara að borga vexti af framlagi kirkjurnar upphaflega. (Gripið fram í.) Við skulum þá taka umræðu um það hver höfuðstóllinn er og hvort við ætlum að borga hann eða halda áfram þessu vaxtagreiðsluferli.